Íslenski ferðavefurinn

  • endursetja

Hraunsvatn Öxnadal

Kría

Hraunsvatn er í botni Vatnsdals milli Þverbrekkufjalls og Háafjalls í Öxnadal. Með öðrum orðum fyrir  neðan Hraundranga. Flatarmál þess er 0,73 km², víða 10-12 m djúpt og það er í 492 m hæð yfir sjó. Veiðileyfi gilda í allt vatnið og fjöldi þeirra er ekki takmarkaður. Veiðin er vatnableikja og er mjög misjöfn.

Stærðin er allt frá smælki upp í 6 pund. Gangan upp að vatninu er 2,5 km og tekur ½ – 1 klst.

Fyrrum var dorgað í gegnum ís á vatninu.
Vegalengdin frá Reykjavík er 399 km og 37 km frá Akureyri.

Skáldið Jónas Hallgrímsson ólst upp á bænum Hrauni í Öxnadal. Faðir hans var prestur þar, en hann drukknaði í Hraunsvatni, þegar Jónas var barn.

Myndasafn

Í grennd

Akureyri
Akureyri er stærsti kaupstaður landsins utan höfuðborgarsvæðisins. Þessi fallegi bær kúrir í fallegum  ramma innst í Eyjafirði vestanverðum og einhver…
Veiði Norðurland
Stangveiði á Norðurlandi. Hér er listi yfir flestar laxveiðiár og silungsár og -vötn.  Laxveiði Norðurlandi vestra …

Allar ábendingar eru velkomnar. Reynum að hafa staðreyndir eins réttar og mögulegt er.

Veldu landshluta

nat.is er upplýsinga- og ferðavefur um Ísland sem var stofnaður 1998.  Íslenska útgáfan er is.nat.is.    ( nat@nat.is )