Hrafntinnuhryggur (685m) er skammt austan og suðaustan Kröflu á Mývatnsöræfum. Hann myndaðist líklega í gosi undir jökli. Eftir honum endilöngum er stór og mikill gangur úr hrafntinnu og víða umhverfis, þ.m.t. í skriðunum, eru misstór brot úr henni. Gæta verður varúðar, þegar fólk brýtur hana, því að hún er glerkennd og flísar geta skotist í augu þess. Hrafntinna var numin úr Skerinu til skreytingar á Þjóðleikhúsinu 1936.
Það er óhætt að mæla með göngu frá sprengigígnum Víti í Kröfluhlíðum, upp á Kröflu og niður suðurskriðurnar, þaðan upp á hrafntinnuhrygg og niður veginn að Kröflustöð. Þar er hlið, sem er yfirleitt lokað mað keðju. Óski fólk að aka upp að hryggnum, er hægt að fá leyfi í Kröflustöð til þess.