Höskuldsvatn er í Reykjahreppi í S.-Þingeyjarsýslu. Það er 1,26 km², mjög grunnt og í 262 m hæð yfir sjó. Vatnið er uppi á Reykjaheiði, steinsnar frá Húsavík. Vegurinn er fær öllum bílum í þurru.
Bleikja er í vatninu, allgóður fiskur, og eitthvað hefur verið sett í það af seiðum. Netaveiði hefur verið reynd með góðum árangri.
Höskuldur hét landnámsmaðurinn, sonur Þorsteins þurs. Hann nam lönd öll fyrir austan Laxá og bjó í Skörðuvík. Vatnið er kennt við hann, því hann drukknaði í því.
Vegalengdin frá Reykjavík er 490 km og 10 km frá Húsavík.