Íslenski ferðavefurinn

  • endursetja

Hólmatungur

Hólmatungur er mjög grózkumikið svæði í Jökulsárgljúfrum vestanverðum beint á móti Forvöðum, sem   eru austan ár. Þar eru margar fagrar stuðlabergsmyndanir og þar var áður foss í Jöklu, sem hét Vígabjargsfoss. Það er á margra orði, að hvergi sé fegurra göngusvæði á landinu en á milli Hljóðakletta og Hólmatungna meðfram Jökulsá á Fjöllum.

Óteljandi lindir spretta upp í Hólmatungum og vatnið fellur stall af stalli niður í Jöklu. Á gönguleiðinni, rétt sunnan Tungnanna, er svokallaður Gloppuhellir í Gloppu, sem er sérstök náttúrusmíð. Norðan Hólmatungna eru Ytra- og Syðra-Þórunnarfjall.

Þjóðsagan segir, að Þórunn ríka í Ási í Kelduhverfi hafi flúið þangað, þegar svarti dauði gekk yfir landið. Þar hafðist hún við með hjúum sínum, þar til að matarskortur fór að segja til sín, en þó ekki fyrr en að smalanum hafði verið slátrað til að fólkið hefði eitthvað að borða. Þá fyrst leitaði Þórunn, sem var allþéttvaxin, til byggða, því að hún óttaðist að hún yrði næst á matseðlinum.

Myndasafn

Í grennd

Þjóðgarðurinn í Jökulsárgljúfrum
Þjóðgarðurinn í Jökulsárgljúfrum var stofnaður árið 1973. Hann nær yfir u.þ.b. 150 km² og 35 km langt   svæði meðfram gljúfrasvæði Jökulsár á Fjöllum …

Allar ábendingar eru velkomnar. Reynum að hafa staðreyndir eins réttar og mögulegt er.

Veldu landshluta

nat.is er upplýsinga- og ferðavefur um Ísland sem var stofnaður 1998.  Íslenska útgáfan er is.nat.is.    ( nat@nat.is )