Íslenski ferðavefurinn

  • endursetja

Hofskirkja á Skagaströnd

Hofskirkja á Skagaströnd er í Höskuldsstaðaprestakalli í Húnavatnsprófastsdæmi. Hof var prestsetur á  ,   u.þ.b. 9 km norðan Höfðakaupsstaðar (Skagastrandar).

Þar eru tóttir, sem kunna að vera af hofi, kallaðar Goðatóttir. Í katólskum sið voru kirkjur staðarins helgaðar Ólafi hinum helga, Noregskonungi. Útkirkja var að Spákonufelli.

Prestakallið var lagt niður 1907 og sóknir hennar lagðar til Höskuldsstaða. Timburkirkjan, sem nú stendur, var byggð árið 1876. Veggir hennar eru múrhúðaðir að utan og þakið járnklætt. Hún er turnlaus en með krossi á stafni. Bogalagaðir gluggar tóku við af fernyrndum og ekkert söngloft er í kirkjunni. Prédikunarstóllinn er ævagamall, trénegldur, með myndum af guðspjallamönnunum. Altaristaflan er gömul og sýnir upprisuna (líklega íslenzkt verk).

 

Myndasafn

Í grennd

Kirkjur á Norðurlandi
Listi yfir flestar kirkjur í landshlutanum Akureyrarkirkja …
Skagaströnd. Höfðakaupsstaður
Skagaströnd er kauptún á vestanverðum Skaga milli Spákonufells og Spákonufellshöfða, sem gengur í sjó fram. Bærinn stendur við víkina sunnan höfðans. …
Sögustaðir Norðurland
Ýmsir staðir tengdir sögu landshlutans Ábæjarkirkja Aðaldalur Akureyrarflugvöllur Akureyri Innbærinn Árbæjarkirkja Skaga…

Allar ábendingar eru velkomnar. Reynum að hafa staðreyndir eins réttar og mögulegt er.

Veldu landshluta

nat.is er upplýsinga- og ferðavefur um Ísland sem var stofnaður 1998.  Íslenska útgáfan er is.nat.is.    ( nat@nat.is )