Hofsjökull (1069m) austan Vatnajökuls, milli Víðidlas í Lóni og Hofsdals í Álftafirði, er meðal minni jökla landsins, aðeins u.þ.b. 13 km². Aðalhjarnbungan er á norðurhluta fjallsins en suður úr honum skríða jöklar í gegnum skörð, s.s. Morsárjökull niður í átt til Víðidals.
Leiðin milli Víðidals og bæja í Hofsdal lá um jökulfannir hans í skarði milli Tungutinda og aðaljökulsins. Þorvaldur Thoroddsen fór þessa leið með Sigfúsi Jónssyni, sem sienna gerðist bóndi í Víðidal, árið 1882. Hofsá í Álftafirði á upptök sín í Hofsjökli.