Íslenski ferðavefurinn

  • endursetja

Hofmannaflöt

Hofmannaflöt er rennisléttur völlur austan Ármannsfells og norðan Þingvalla. Hún er kringd fjöllum á     þrjá vegu og opin móti suðri. Austan hennar er Mjóafell og norðan þess Goðaskarð. Norðan flatarinnar er allsérstætt fell, sem lítur út eins og sæti og ber nafn með rentu, Meyjarsæti (237m). Beggja vegna þess eru Sandkluftir, þröng skörð, sem hafa bæði borið umferðina milli Sandkluftavatns og Hofmannaflatar öldum saman.

Fyrrum lá bílvegurinn um eystra skarðið en síðustu áratugina hefur vestara skarðið verið notað. Aðalástæða þess er, að sandskaflar lokuðu oft veginum austan Sandkluftavatns, sem gerist tæpast vestan þess. Gömul, friðlýst veghleðsla upp í eystra skarðið sunnanvert sést enn þá greinilega.

Flötin sjálf var löngum ræktuð og slegin fyrr á tímum og þar var kærkominn áningarstaður ferðamanna, sem komu langa leið um Kaldadal. Ármannssaga segir frá leikum, sem fóru fram á Hofmannaflöt, þegar helztu tröll landsins hittust þar. Í vorleysingum safnast vatn á flötina og talsvert djúp tjörn myndast. Margir urðu fyrir því að missa bíla sína niður um ís á tjörninni, þegar vegurinn lá um eystra skarðið. Eyfirðingavegur lá sunnan Langjökuls og Skjaldbreiðar niður Goðaskarð á Hofmannaflöt.

Hellisskarðsleið er forn. Hún liggur um Goðaskarð frá Hofmannaflöt, hjá Gatfelli og austur um Skjaldbreiðarhraun norðan Skriðunnar. Þaðan á Hlöðuvelli sunnan þess og í Hellisskarð, sem leiðin heitir eftir. Það er á milli Högnhöfða og Kálfstinds og þaðan er útsýni fagurt á góðum degi. Hraunfoss úr því sameinast Svínahrauni. Leiðin liggur áfram til austurs að Helludal austan Geysis. Pálmi Hannesson, rektor, sagði þessa leið einhverja hina fegurstu á landinu.

Myndasafn

Í grennd

Reiðleiðir og götur Árnessýsla
Inngangur: Fornar götur geyma á margan hátt merka sögu. Á Beitivöllum skammt frá Reyðarmúla hittust t.d. Flosi og Hallur af Síðu á leið til Alþingis …
Sögustaðir Suðurland
Ýmsir staðir tengdir sögu landshlutans Álfaskeið Álftaver Almenningar Alviðra Arnarbæli Áshildarmýri Ásólf…
Þingvellir helgistaður allra Íslendinga
Á Þingvöllum við Öxará komu Íslendingar saman í fyrsta sinni árið 930. Upp frá því voru Þingvellir Fundarstaður þjóðarinnar allt til ársins 1798 eða í…

Allar ábendingar eru velkomnar. Reynum að hafa staðreyndir eins réttar og mögulegt er.

Veldu landshluta

nat.is er upplýsinga- og ferðavefur um Ísland sem var stofnaður 1998.  Íslenska útgáfan er is.nat.is.    ( nat@nat.is )