Íslenski ferðavefurinn

  • endursetja

Hildarsel

AUSTURDALUR

Hildarsel – skáli FFS Hildarsel er í um 340 m.y.s., austan Jökulsár í Austurdal í Skagafirði, 8 km þægilega  gönguleið fyrir framan kirkjustaðinn og eyðibýlið Ábæ.

Ábæjará og Tinná eru með göngubrúm en annars aðeins smálækir á leiðinni.

Fært á fjallareiðhjóli og skemmtileg reiðleið.

Frá Hildarseli eru um 5 km fram í Fögruhlíð einstaka náttúruperlu með birkiskógi í 350-500 m.y.s. þar sem hæstu trén eru um 7 m á hæð. Gömul „kaupstaðar“- og gönguleið liggur um Nýjabæjarfjall að Villingadal í Eyjafirði.

Um Varmahlíð veg 752 og 758 að Ábæ eru um 50 km. Ath. Ekki er fært fyrir litla/lága fólksbíla frá Monikubrú að Ábæ.

Meðeigendur FFS eru upprekstrarfélag Akrahrepps og landeigendur og eigendur að hestaaðstöðu.

16 manns í kojum 20 á svefnlofti – Gönguskáli – Vatn í læk/krana 50 m frá skála. Raflýsing! Hesthús og hestahólf 80 m frá skála
GPS hnit: 65°15,330´N 18°43,910´W.
Heimild: Vefur FFS.

Myndasafn

Í grennd

Austurdalur í Skagafirði
Austurdalur í Skagafirði er næstum 50 km langur. Hann nær frá ármótum Austari- og Vestari Jökulsáa,  sem Héraðsvötn myndast. Austurdalur er þröngur og…

Allar ábendingar eru velkomnar. Reynum að hafa staðreyndir eins réttar og mögulegt er.

Veldu landshluta

nat.is er upplýsinga- og ferðavefur um Ísland sem var stofnaður 1998.  Íslenska útgáfan er is.nat.is.    ( nat@nat.is )