Íslenski ferðavefurinn

  • endursetja

Helgafellskirkja

Helgafellskirkja er í Stykkishólmsprestakalli í Snæfellsness- og Dalaprófastsdæmi. Árið 1184 var Ágústínusarklaustur flutt að Helgafelli úr Flatey. Eftir það varð staðurinn miðstöð menningar og bókmenntalífs á Vesturlandi.

Nokkur merkileg handrit hafa varðveitzt frá þessum tíma, en margt glataðist. Séra Sigurður Pálsson drukknaði í Helgafellsvatni árið 1624, ári eftir að hann tók við staðnum. Hann fór með tveimur vinnukonum á hriplekum báti út í hólma í vatninu til að sækja egg. Þegar báturinn fylltist af vatni, urðu stúlkurnar ofsahræddar og héldu í prestinn, þar til þau drukknuðu öll. Hermann Pálsson skrifaði sögu Helgafells, Helgafell, saga höfuðbóls og klausturs.

Myndasafn

Í grennd

Kirkjur á Íslandi
Það er erfitt að draga skörp landfræðileg skil milli kirkna, kirkjustaða og sögu kristninnar á milli. Á þessum vef fer skiptingin ekki eftir prófastsd…
Sögustaðir Vesturlandi
Ýmsir staðir tengdir sögu landshlutans Borgarfjörður Snæfellsnes Dalir Landshlutar Ferðavísir…

Allar ábendingar eru velkomnar. Reynum að hafa staðreyndir eins réttar og mögulegt er.

Veldu landshluta

nat.is er upplýsinga- og ferðavefur um Ísland sem var stofnaður 1998.  Íslenska útgáfan er is.nat.is.    ( nat@nat.is )