Íslenski ferðavefurinn

  • endursetja

Hallgrímskirkja í Vindáshlíð

Hallgrímskirkja í Vindáshlíð var reist úr timbri árið 1878 á Saurbæ á Hvalfjarðarströnd. Höfundur  var Eyjólfur Þorvarðsson, forsmiður að Bakka. Kirkjan var flutt að Vindáshlíð árið 1957 og þá var reistur kór og innri gerð hennar var breytt verulega. Þessar breytingar annaðist Aðalsteinn Thorarensen, húsgagnasmiður.

Hún var endurvígð á þessum nýja stað 16. ágúst 1959. Hallgrímsnafnið hefur hún borið æ síðan. Kirkjan er einkaeign Vindáshlíðar, einnar starfstöðvar KFUM og KFUK á Íslandi. Hún þjónar æskulýðsstarfi og er vel sótt allt árið.

Kirkjan var friðuð 1. janúar 1990.

20.11.08. Guðrún Kristjánsdóttir, formaður stjórnar Vindáshlíðar KFUM og KFUK á Íslandi, var svo elskuleg, að koma á framfæri leiðréttingum, sem hefur nú verið komið fyrir.

Hallgrímskirkja í Saurbæ.
Hallgrímskirkja í Reykjavík.

Myndasafn

Í grennd

Kirkjur á Íslandi
Það er erfitt að draga skörp landfræðileg skil milli kirkna, kirkjustaða og sögu kristninnar á milli. Á þessum vef fer skiptingin ekki eftir prófastsd…

Allar ábendingar eru velkomnar. Reynum að hafa staðreyndir eins réttar og mögulegt er.

Veldu landshluta

nat.is er upplýsinga- og ferðavefur um Ísland sem var stofnaður 1998.  Íslenska útgáfan er is.nat.is.    ( nat@nat.is )