Íslenski ferðavefurinn

  • endursetja

Gunnarssonavatn

Gunnarssonavatn er á norðurmörkum Mýrarsýslu. Stærð þess er 2,38 km², það er grunnt og það er í 541 m hæð yfir sjó. Gunnarssonavatnslækur rennur úr því til norðurs í ótal hlykkjum um mörg vötn og breytir oft um nöfn.

Mikill og allvænn fiskur er í vatninu, bæði bleikja og urriði.

Samkvæmt sögunni um nafngift vatnsins höfðu staðið harðindi lengi vetrar eins og orðinn bjargarskortur á mörgum bæjum.
Þá fóru bræður tveir, Gunnarssynir, úr Miðfirði til vatnanna, vökuðu niður um ís og dorguðu upp öfugugga og neyttu. Þeir dóu báðir.

Vegalengdin frá Reykjavík um Kaldadal er u.þ.b. 200 km.

 

Myndasafn

Í grennd

Arnarvatnsheiði og Tvídægra veiðivötn
Arnarvatnsheiði og Tvídægra eru heiðarflæmi, sem þekja norðvestuhluta meginhálendisins. Þar eru vötnin sögð óteljandi líkt og hólarnir í Vatnsdal og e…
Hálendisveiði
Hálendisveiði skiptist í 5 veiðisvæði. Þannig er best að velja svæði og síðan hvernig farið er þangað hér að neðan. Þessi svæði eru Arnarvatnsheiði…

Allar ábendingar eru velkomnar. Reynum að hafa staðreyndir eins réttar og mögulegt er.

Veldu landshluta

nat.is er upplýsinga- og ferðavefur um Ísland sem var stofnaður 1998.  Íslenska útgáfan er is.nat.is.    ( nat@nat.is )