Upptök Grímsár eru í Reyðarvatni uppi af Uxahryggjaleið. Það er þekkt bleikjuveiðivatn. Áin er býsna löng, fellur um allan Lundareykjadal og er laxgeng að Jötnabrúarfossi, sem er fyrir ofan dalbotninn. Veitt er á tíu stangir í ánni og auk þess eru tvær í Tunguá, lítilli sprænu, sem rennur í Grímsá efst í dalnum. Tunguá er laxgeng að Englandsfossi.
Grímsá gefur yfirleitt á bilinu 1200 til 1800 laxa á sumri og þykir vera ein af perlum landsins. Hún er sérlega fjölbreytt og vel löguð fluguveiðiá. Er í henni að finna suma þekktustu veiðihylja landsins og má nefna Laxfoss, Svartastokk og Strengina.
Tunguáraflinn er yfirleitt inni í ofangreindum tölum, en á góðu sumri skríður hún í 100 fiska Grímsá var fyrrum ein mesta stórlaxaá landsins, en er nú með hreinni smálaxaám. Þó veiðast alltaf stórlaxar í bland og oft má sjá ægileg ferlíki í Hörgshyl ofanverðum, rétt ofan brúarinnar við Fossatún.