Íslenski ferðavefurinn

  • endursetja

Grenjaðarstaður

Á sínum tíma var Grenjaðarstaður (Aðaldal) höfuðból sveitarinnar. Flatarmál bæjarhúsanna er 775 m².   Elzta hluta þeirra, innganginn og norðurhúsið, lét séra Magnús Jónsson (1809-1889) byggja. Árið 1877 voru bæjarhúsin í niðurníðslu og séra Benedikt Kristjánsson lét gera þau upp, nema austurinnganginn og norðurhúsið.

Á hans dögum bjuggu allt að 30 manns í bænum. Árið 1915 eru 15 manns skráðir þar. Séra Þorgrímur Sigurðsson og fjölskylda hans, sem komu á staðinn 1932, voru síðustu íbúar bæjarins. Árið 1955 endurbyggði Þjóðminjasafnið bæinn. Því verki var lokið 1958 og hinn 9. júlí sama ár var byggðasafnið opnað.

Myndasafn

Í grennd

Grenjaðarstaðakirkja
Kirkjan er í Grenjaðarstaðaprestakalli í Þingeyjarprófastsdæmi. Grenjaðarstaður er bær, kirkjustaður,  byggðasafn og prestssetur í Aðaldal. Þar voru k…

Allar ábendingar eru velkomnar. Reynum að hafa staðreyndir eins réttar og mögulegt er.

Veldu landshluta

nat.is er upplýsinga- og ferðavefur um Ísland sem var stofnaður 1998.  Íslenska útgáfan er is.nat.is.    ( nat@nat.is )