Golfvöllurinn Efri-Vík
880 Kirkjubaejarklaustur
Tel.: 487-4694/854-1151
efrivik@simnet.is
9 holes, par 35.
Golfvöllur hefur verið starfræktur að Efri-Vík í Landbroti, 4 km frá Kirkjubæjarklaustri, síðan 1991. Ábúendurnir reka völlinn í tengslum við golfklúbbinn. Þar er líka önnur ferðaþjónusta svo sem gisting í sumarhúsum, veitingar og veiðileyfi.
Á gulum teigum er völlurinn 2399 m 66,2/106 en 1930 m 65,6/102 á rauðum.
Vegna veðursældar í Skaftárhreppi er hægt að spila á vellinum mikinn hluta ársins þó aðalstarfsemin fari fram á tímabilinu maí – október. Golfsett og kúlur eru til leigu á staðnum. (heimild: vefur GKL).