Íslenski ferðavefurinn

  • endursetja

Gljúfurleit

Gljúfurleit er hluti dalsins, sem Þjórsá rennur um vestan Búðarháls. Þessi Dalur er á milli Sandafells í   suðri og Þjórsárvera í norðri. Þetta svæði er vel gróið með blómstóði og berjalautum. Syðri áin, sem rennur um Gljúfurleit og fellur í Þjórsá í háum en vatnslitlum fossi, er Geldingaá. Mjög fallegt stuðlaberg er í Geldingatanga norðan árinnar er fagurt stuðlaberg og norðan hans fellur Höskná til Þjórsár. Leitarmenn nota gjarnan Gljúfurleitarkofa í göngum. Þétt lag af vatnaseti er í gljúfri Þjórsár á milli jökulruðninga og bæði undir og yfir eru grágrýtislög frá hlýskeiðum ísaldar, sem mynda hamraveggi. Þjórsá lætur ekki sitt eftir liggja og prýðir umhverfið með Gljúfurleitarfossi (28m) við Geldingatanga og Dynki (Búðarhálsfossi; 38m) neðan Kóngsás. Bezt er að skoða fossinn frá eysti bakka Þjórsár, frá Búðarhálsi, og aka þá inn Búðarháls frá brúnni á Tungnaá við Hald. Allmiklu norðar er Hvanngiljafoss. Vegur liggur norður dalinn vestan Þjórsár um Gljúfurleit og í jaðri Þjórsárvera yfir í Kerlingarfjöll. Á leiðinni er farið um Fjórðungssand milli Hnífár og Kisu. Bezt er að fara um þessar slóðir í fjallabílum.

Myndasafn

Í grennd

Hrauneyjar – Sigalda – Versalir
Hrauneyjar eru svæði sunnan Tungnár, þar sem Hrauneyjarfell er og Hrauneyjarfoss var áður en áin var  neðan við Fossöldu norðan ár. Áin var stífluð a…
Sögustaðir Hálendinu
Ýmsir staðir tengdir sögu landshlutans Sögustaðir. Nýjar og gamlar Hálendisleiðir, útilegumenn, þjófar og draugar eru meðal þess sem finna má á sö…
Þjórsá
Mynd Urriðafoss Þjórsá lengsta á landsins. Landnáma skýrir á eftirfarandi hátt frá nafngift árinnar: „Þórarinn hét maður, son Þorkels úr Alviðru Hal…

Allar ábendingar eru velkomnar. Reynum að hafa staðreyndir eins réttar og mögulegt er.

Veldu landshluta

nat.is er upplýsinga- og ferðavefur um Ísland sem var stofnaður 1998.  Íslenska útgáfan er is.nat.is.    ( nat@nat.is )