Íslenski ferðavefurinn

  • endursetja

Gjárnar á Þingvöllum

Þingvellir

Almannagjá er líklega upprunalegt nafn. Framhald hennar er gjárnar Stekkjargjá, Snókagjá og   Hvannagjá, sem teygir sig inn að Ármannsfelli. Samtals eru þessar gjár um 8 km langar. Suður undir Hakinu eru Hestagjá, Lambagjá og Hrútagjá, sem bera allar samnefnið Almannagjá. Enn austar er Háagjá og Flosagjá.
Við austurjaðar sigdældarinnar eru Hrafnagjá, Guldruholtsgjá og Heiðargjá, Brennugjá er austan valla meðfram veginum og opnast að Öxará, þar sem vegurinn stendur á uppfyllingu í henni. Sagt er að níu menn hafi verið brenndir í gjármynninu á 17. öld. Flosagjá (Nikulásargjá, Peningagjá) er sunnan Spangarinnar. Kattargjá klofnar út úr Skötutjörn, sem er framhald Flosagjár. Kolsgjá er norðaustan Flosagjár.

Leiragjá er framhald Háugjár, austan Tæpastígs og Leirna. Sleðaásgjá er framhald Leirugjár inni undir Bolaklifi sunnan Sleðaáss. Vallargjá er framhald Flosagjár frá Spangarsporði norður vellina.

Framhald Nikulásargjár (Flosagjár) til vesturs um tún Þingvallabæjarins eru Seigla, Túngjá og Fjósagjá. Silfra, sem er aðeins austar, er horfið undir vatn. Þaðan kemur oftast meira vatn úr uppsprettunum en frá Öxará. Skötugjá er framhald Flosagjár í Þingvallatúni.

Myndasafn

Í grennd

Sögustaðir Suðurland
Ýmsir staðir tengdir sögu landshlutans Álfaskeið Álftaver Almenningar Alviðra Arnarbæli Áshildarmýri Ásólf…
Þingvellir helgistaður allra Íslendinga
Á Þingvöllum við Öxará komu Íslendingar saman í fyrsta sinni árið 930. Upp frá því voru Þingvellir Fundarstaður þjóðarinnar allt til ársins 1798 eða í…

Allar ábendingar eru velkomnar. Reynum að hafa staðreyndir eins réttar og mögulegt er.

Veldu landshluta

nat.is er upplýsinga- og ferðavefur um Ísland sem var stofnaður 1998.  Íslenska útgáfan er is.nat.is.    ( nat@nat.is )