Geiradalsá er í Geiradalshreppi, Austur-Barðastrandasýslu. Áin er ekki vatnsmikil. Hún á upptök í hálendinu og þaðan koma tvær ár, Bakkaá og Gautsdalsá. Frá þeim kemur aðalvatn Geiradalsár, sem fellur svo í Kollafjörð.
Geiradalsá státar af fjölbreyttu og fögru umhverfi, graslendi er meðfram ánni og ágætt að komast að veiðistöðum en þar er mest af sjóbleikju Lax hefur heilsað uppá veiðimenn neðst í ánni, en er frekar sjaldséður. Vegalengdin frá Reykjavík er um 240 km og u.þ.b. 50 km frá Búðardal.