Flugumýri er bær og kirkjustaður í Blönduhlíð. Kirkjan, sem þar stendur, var vígð árið 1930.
Meðal merkra manna, sem bjuggu á staðnum var Þórir dúfunef, sem nam land á milli Glóðafeykis og Djúpár, og bærinn var kenndur við forláta meri hans Flugu, sem var allra hesta skjótust. Þar bjó líka um tíma Gissur Þorvaldsson, þegar Flugumýrarbrenna varð u.þ.b. 25 manns að bana.
Sturlunga lýsir þessum atburðum, þegar óvinaher kom að bænum árið 1253 til að standa yfir höfuðsvörðum Gissurar. Frægt er, hvernig Gissur komst lífs af með því að fela sig í sýrukeri. Bæjarbrennan kom í kjölfar brúðkaups Halls, sonar Gissurar, og Ingibjargar, dóttur Sturlu Þórðarsonar sagnaritara. Kona Gissurar og þrír synir fórust auk annarra, en mörgum var gefinn kostur á útgöngu.
Snemma á nítjándu öld var læknissetur á Flugumýri og prestafundir Hólastiftis voru haldnir þar um skeið. Á árunum 1880-82 var kvennaskóli þar. Virkishóll er við rætur Glóðarfeykis. Þar kann að hafa verið virki og minjarnar eru friðlýstar.
Flugumýri er nú mikið hrossaræktarbú og bændagisting með margs konar afþreyingu í boði. Myndin á þessari síðu er af vefsetri Flugumýrar (2007).