Íslenski ferðavefurinn

  • endursetja

Ferstikla

Ferstikla á Hvalfjarðarströnd var í upphafi bústaður landnámsmannsins Kolgríms hins gamla frá Þrándheimi. Tengdafaðir hans, Hróðgeir spaki, bjó að Saurbæ, þar til hann seldi og flutti brott. Skroppa hin fjölkunnuga, fóstra Þorsteins öxnabrodds, á Saurbæ er nafngjafi Skroppugils við Ferstiklu. Hún brá sér í gyltulíki, þegar Hólmverjar komu í heimsókn en Hörður sá við henni og drap hana með steini.
Hallgrímur Pétursson dvaldi að Ferstiklu hjá Eyjólfi syni sínum síðustu æviárin.

Vestan veitingaskálans er Borgarfjarðarbraut (# 50) yfir í Svínadal um Dragháls til Skorradals að  Haugum í Stafholtstungum.
Uppi á hásinu, þar sem sést niður í Svínadslinn, er dys með krossmarki þétt við veginn vestanverðan. Hún er kölluð Erfingi. Þar var dysjaður smalamaður úr Svínadal. Hann hafði óskað eftir legstað að Draghálsi en var engu að síður fluttur áleiðis að kirkju í Saurbæ. Þegar komið var upp á hálsinn, þar sem dysin er, varð líkið svo þungt, að því var ekki hnikað lengra.

Litlu vestar á Hvalfjarðarströndinni liggur vegur að Hótel Glymi í mynni Mjóadals og Vatnaskógi, þar sem KFUM rekur sumarbúðir drengja. Fyrrum voru tvö býli í Vatnaskógi, Oddakot og Fúsakot. Friðrik Friðriksson (1866-1961) stofnaði KFUM í Reykjavík 1899. Hann fæddist að Hálsi í Svarfaðardal og var afkastamikill rithöfundur.

Séra Friðrik og drengurinn
Á horni Amtmannsstígs og Lækjargötu. Eins og margir aðrir hafði Sigurjón Ólafsson numið kristinfræði í æsku hjá sr. Friðriki Friðrikssyni (1868–1961) og var hlýtt til hans. Á stríðsárunum voru þeir báðir innlyksa í Danmörku þar sem Sigurjón gerði höfuðmynd af sr. Friðriki árið 1943 „áður en það yrði um seinan“ eins og hann komst að orði.
Samkvæmt heimildum er drengurinn á stittuni vera frændi og alnafni Friðriks kristinboða frá Selfossi (1931- 2021).

Hvað er betra enn að Ferðast og Fræðast !!!

Myndasafn

Í grennd

Hvalfjörður
Hinn fagri Hvalfjörður gengur inn úr Faxaflóa milli Akraness og Kjalarness. Hann er u.þ.b. 30 km   langur, 4-5 km breiður og víðast alldjúpur. Mesta d…
Kjósarhreppur
Kjósarhreppur Sveitafélagið er dreifbýlishreppur (landbúnaðarhérað), 298 ferkílómetrar að stærð. Íbúar með  lögheimili í hreppnum 1. janúar 2020 vor…
Sögustaðir Vesturlandi
Ýmsir staðir tengdir sögu landshlutans Borgarfjörður Snæfellsnes Dalir Landshlutar Ferðavísir…
Vatnaskógarkapella
KAPELLAN í Vatnaskógi, KFUM og K er í Borgarprestakalli í Borgarfjarðarprófastsdæmi. Vestan veitingaskálans sem var Ferstikkla er Borgarfjarðarb…

Allar ábendingar eru velkomnar. Reynum að hafa staðreyndir eins réttar og mögulegt er.

Veldu landshluta

nat.is er upplýsinga- og ferðavefur um Ísland sem var stofnaður 1998.  Íslenska útgáfan er is.nat.is.    ( nat@nat.is )