Íslenski ferðavefurinn

  • endursetja

Eyvindará

Eyvindará er í Egilsstaðahreppi, Suður-Múlasýslu. Talin bæði lindá og dragá. Upptökin eru í  Eyvindaárdölum (Slenjudal, Tungudal og Svínadal). Áin fellur í Lagarfljót skammt utan Egilsstaða.

Umhverfið er Egilstaða-, Miðhúsa- og Dalhúsaskógur. Í Eyvindará er vænn fiskur bæði urriði og bleikja, talin koma úr Lagarfljóti. Einnig er þar sjóbirtingur, sem gengur upp stigann við Lagarfljótsvirkjun. Eyvindará er að mestu lindá, og er ein fegursta á landsins, silfurtær og rennur um skógi vaxið land, full af flúðum og fögrum hyljum.

Miðhúsaá á upptök á Fjarðarheiði og sameinast Eyvindará við Miðhús. Hún skartar m.a. Folaldafossi, Gufufossi og Fardagafossi, sem er efstur. Hellir er undir honum. Þar bjó tröllkerling og hann var sagður liggja gegnum fjallið til Gufufoss í Fjarðará. Fjalla-Eyvindur er sagður hafa dvalið í þessum helli um hríð, þar til menn í Eiðaþinghá ráku hann brott.

Vegalengdin frá Reykjavík er u.þ.b. 710 km og rétt við Egilsstaði.

 

Myndasafn

Í grennd

Egilsstaðir og Fellabær
Egilsstaðir og Fellabær eru á Fljótsdalshéraði, en þar er eitthvert veðursælasta svæði landsins, minnir helzt á meginlandsloftslag. Egilsstaðahrepp…
Veiði Austurland
Stangveiði á Austurlandi. Hér er listi yfir flestar laxveiðiár og silungsár og -vötn. Laxveiði Austurlandi …

Allar ábendingar eru velkomnar. Reynum að hafa staðreyndir eins réttar og mögulegt er.

Veldu landshluta

nat.is er upplýsinga- og ferðavefur um Ísland sem var stofnaður 1998.  Íslenska útgáfan er is.nat.is.    ( nat@nat.is )