Íslenski ferðavefurinn

  • endursetja

Evrópa ferðast og fræðast

Íslendingar búa á mörkum hinnar landfræðilegu Norður-Ameríku og Evrópu sé hryggur Mið-Atlantshafsins notaður til viðmiðunar, enda er landið útvörður álfunnar í vestri. Stutt er héðan til næsta lands, Grænlands, sem tilheyrir Norður-AmerÍ­ku. Atlantshafsströnd Evrópu og eyjar vestan hennar eru vesturmörk álfunnar, Miðjarðarhafið suðurmörkin, Bosporus, Kákasusfjöll og Úralfjöll suðaustur og austurmörkin og Íshafið að norðanverðu. Evrópa er á sama fleka jarðar og Asía og því er oft talað um álfurnar í sama vetfangi sem Evrasíu. Það er því flest skylt með þessum tveimur heimsálfum land- og jarðfræðilega. Evrópa er minni og með færri íbúa.

Álfunni er gjarnan skipt í Norður-, Austur-, Suður-, Vestur- og Mið-Evrópu, bæði landfræðilega og þegar talað er um mannfólkið og uppruna þess. Þess verður þó að gæta, að flestir Evrópubúar eru af austrænum stofnum, sem flæddu yfir álfuna undanfarnar steinaldir og mest er vitað um fyrstu fimm aldir okkar tí­matals. Menningarþróun Evrópu hófst mun síðar en í Asíu, en hefur skotizt fram úr henni á mörgum sviðum.

Evrópa nær ekki eins langt suður á bóginn og Asía og þess vegna er fjölbreytni flóru og fánu ekki eins mikil, þótt landslagsmunstrin séu svipuð og jafnmargvísleg. Evrópa státar af háum fjöllum og víðáttumiklum láglendissvæðum, sem henta vel til landbúnaðar og borgum, bæði innanlands og við sjávarsíðuna. Minna er um eyðimerkur í Evrópu en í hinum heimsálfunum og veðurfar ræðst af legunni frá tempraða beltinu í suðri til kuldabeltisins í norðri.

Flestir Evrópubúar eru hvítir en þó alls ekki einsleitir, því að uppruninn er mismunandi. Búseta þeirra er ekki endilega í samræmi við þjóðerni vegna pólití­skrar skiptingar álfunnar í kjölfar tveggja blóðugra heimsstyrjalda og æ fleiri flytjast til Evrópu frá öðrum álfum, einkum fyrrum nýlendum og áhrifasvæðum Evrópulanda. Fjöldi tungumála er talaður í álfunni. Flest eru þau af indógermönskum stofni en önnur óskyldari eru af Úralstofni, Kákasusstofni og baskamál.

Lönd Evrópu:

ANDORRA
ALBANÍA
ARMENÍA
AUSTURRÍKI
AZERBAJDZHAN
BELGÍA
BOSNÍA og HERZEGOVÍNA
BRETLANDSEYJAR
BÚLGARÍA
DANMÖRK

EISTLAND
FINNLAND
FRAKKLAND

FÆREYJAR
GEORGÍA
GÍBRALTAR
GRIKKLAND
HOLLAND
HVÍTA-RÚSSLAND
ÍRLAND
ÍSLAND
ÍTALÍA
JÚGÓSLAVÍA- FYRRUM
KAZAKHSTAN
KRÓATÍA
KÝPUR
LETTLAND
LITHÁEN
,
LIECHTENSTEIN
LUXEMBURG
MAKEDÓNÍA
MALTA
MOLDÍÓVA
MÓNAKÓ
NORÍÐURLÖND
NOREGUR
PORTÚGAL
PÓLLAND
RÚMENÍA
RÚSSLAND
SAN MARINO
SERBÍA
SKOTLAND
SLÓVAKÍA
SLÓVENÍA
SOVÉT FYRRUM
SPÁNN
SVARTFJALLALAND
SVISS
SVÍÞJÓÐ
TÉKKLAND
TYRKLAND
ÚKRAÍNA
UNGVERJALAND
VATÍKANRÍKIÐ
ÞÝZKALAND
ÝMISLEGT UM EVRÓPU og JÖRÐINA
LENGSTU ÁR
HELZTU ELDFJÖLL
STÆRSTU HELLAR
ATLANTSHAF
STÆRSTU EYJAR
HELZTU SKIPASKURÐIR
RÓMANSKI STÍLLINN
GOTNESKI STÍLLINN
EVRÓPUSAMBANDIÐ
HEIMSHÖFIN
LÖND JARÐAR
ÝMISLEGT UM JÖRÐINA
STÆRSTU STÖÐUVÖTNIN
NÝLENDUR og VERNDARSVÆÐI

 

Myndasafn

Í grennd

Atlantshafið
Ýmiss fróðleikur um Atlantshafið Atlantshafið þekur næstum fimmtung jarðar og skilur að meginlönd Evrópu og Afríku í austri og Norður- og Suður-Amerí…

Allar ábendingar eru velkomnar. Reynum að hafa staðreyndir eins réttar og mögulegt er.

Veldu landshluta

nat.is er upplýsinga- og ferðavefur um Ísland sem var stofnaður 1998.  Íslenska útgáfan er is.nat.is.    ( nat@nat.is )