Íslenski ferðavefurinn

  • endursetja

Breiðabólstaður

Breiðabólstaður

Breiðabólstaður er kirkjustaður, löngum prestsetur og setur höfðingja á Skógarströnd. Þar bjó meða annarra Steinn mjögsiglandi Vígbjóðsson, sem Landnáma segir landnámsmann á Skógarströnd. Fyrsta kirkjan var byggð árið 1563, sem var útkirkja frá Narfeyri. Prestakallið var lagt niður 1970 og lagt til Stykkishólms. Kirkjan, sem nú stendur, var vígð 1973.

Þorgestur gamli Steinsson bjó að Breiðabólstað, þegar hann fékk lánaða setstokka hjá Eiríki rauða. Hann tregðaðist við að skila þeim aftur og Eiríkur heimsótti hann og tók þá með sér. Þorgestur brást hinn versti við og fór eftir Eríki við nokkra menn. Fundum þeirra bar saman að Dröngum, þar sem bardagi hófst. Þar missti Þorgestur tvo syni sína meðal annarra (Eiríkssaga rauða, Grænlendingasaga o.fl.).

Myndasafn

Í grennd

Kirkjur á Íslandi
Það er erfitt að draga skörp landfræðileg skil milli kirkna, kirkjustaða og sögu kristninnar á milli. Á þessum vef fer skiptingin ekki eftir prófastsd…
Sögustaðir Vesturlandi
Ýmsir staðir tengdir sögu landshlutans Borgarfjörður Snæfellsnes Dalir Landshlutar Ferðavísir…

Allar ábendingar eru velkomnar. Reynum að hafa staðreyndir eins réttar og mögulegt er.

Veldu landshluta

nat.is er upplýsinga- og ferðavefur um Ísland sem var stofnaður 1998.  Íslenska útgáfan er is.nat.is.    ( nat@nat.is )