Íslenski ferðavefurinn

  • endursetja

Bláskógar

Þingvellir

Landið umhverfis Þingvallavatn var nefnt Bláskógar að fornu. Landnáma telur Skálabrekku vera í  Bláskógum. Þar er einnig getið Grímkels goða í Bláskógum en samkvæmt Harðar sögu, bjó hann „suður af fjöllum, skammt frá Ölfusvatni“, og færði síðar bú sitt að Ölfusvatni.

Menn hafa þótzt hafa fundið rústir fyrri bústaðar Grímkels rétt utan túns í Króki í Grafningi. Löngu síðar er Ölkofri, öðru nafni Þórhallur sagður hafa búið í Bláskógum á Þórhallsstöðum, en bær hans er talinn hafa staðið á svipuðum slóðum og bærinn Skógarkot. Nafnið Bláskógaheiði er oft nefnt í fornritum og virðist eiga við fjallveginn milli Reykjadals syðri (Lundareykjadals) og Þingvallasveitar.

Myndasafn

Í grennd

Sögustaðir Suðurland
Ýmsir staðir tengdir sögu landshlutans Álfaskeið Álftaver Almenningar Alviðra Arnarbæli Áshildarmýri Ásólf…
Þingvellir helgistaður allra Íslendinga
Á Þingvöllum við Öxará komu Íslendingar saman í fyrsta sinni árið 930. Upp frá því voru Þingvellir Fundarstaður þjóðarinnar allt til ársins 1798 eða í…

Allar ábendingar eru velkomnar. Reynum að hafa staðreyndir eins réttar og mögulegt er.

Veldu landshluta

nat.is er upplýsinga- og ferðavefur um Ísland sem var stofnaður 1998.  Íslenska útgáfan er is.nat.is.    ( nat@nat.is )