Íslenski ferðavefurinn

  • endursetja

BAHAMAEYJAR

bahamaeyjar

BAHAMAEYJAR

Bahamaeyjar liggja norðaustan og austan Stóru-Antilleyja. Þar ríkir stjórnarskrárbundið einveldi í brezka samveldinu. Heildarflatarmál 13.935 km². Íbúafjöldi 264.000 (1993). Höfuðborg Nassau. Tungumál enska. Nafn eyjanna er dregið af spænska nafninu ‘baja mar’, sem þýðir grunnsævi. Loftslag er þar mjög milt og Mið-Evrópubúar líta margir á eyjarnar sem orlofsparadís. Þar er að finna margar fámennar baðstrendur, góða aðstöðu til köfunar, urmul kóralla- og fisktegunda, marga möguleika til vatnaíþrótta, lúxushótel, orlofshús, spilavíti, smábátahafnir, golf- og tennisvelli auk alls konar annara möguleika til afþreyingar í sumarfríinu.

Um langan aldur voru gestir eyjanna að mestu auðugt fólk, en eftir síðari heimsstyrjöldina fór almenningur í Bandaríkjunum og Kanada að sækja þangað í auknum mæli og uppbygging ferðamannastaða hófst til að taka við auknum fjölda. Einkum var byggt upp á New Providence (Nassau) og á Grand Bahama (Freeport/Lucaya). Fjársterk fyrirtæki hófu uppbyggingu ferðaþjónustu á minni eyjum og nutu til þess skattafríðinda yfirvalda Bahamaeyja, sem hlutu sjálfstæði frá Bretum árið 1973.

Myndasafn

Í grennd

Heimshöfin
ADRÍAHAF Adríahafið skilur á milli Ítalíu og Austur-Evrópu. Það var nefnt eftir hinni blómstrandi hafnarborg Adria á rómverskum tíma. Þessi flói in…

Allar ábendingar eru velkomnar. Reynum að hafa staðreyndir eins réttar og mögulegt er.

Veldu landshluta

nat.is er upplýsinga- og ferðavefur um Ísland sem var stofnaður 1998.  Íslenska útgáfan er is.nat.is.    ( nat@nat.is )