Núpsstaður er austasti bær í Fljótshverfi, skammt vestan Skeiðarársands. Bændur þar fylgdu ferðamönnum gjarnan yfir vötnin og sandinn, þegar hann var riðinn. Ofan bæjar er fallegt hamrabelti með alls konar kynjamyndum.
Bænhúsið á Núpsstað er að stofni frá 17. öld og í umsjá þjóðminjavarðar. Það var endurbyggt árið 1972. Hannes Jónsson (1880-1968) póstur og ferða- og vatnagarpur liggur grafinn bak við bænahúsið.
Árið 2006 hóf Þjóðminjasafnið vinnu við varðveizlu muna í gömlu húsunum að Núpstað. Sagt er, að þau verði gerð upp að einhverju leyti. (Filippus Hannesson fæddist 2. desember 1909. Filippus Hannesson, andaðist á hjúkrunarheimilinu Klausturhólum, 23. maí, 2010 á 101. aldursári
Vegalengdin frá Reykjavík er um 370 km.