Ásbúðnavatn er í Skagahreppi í Austur-Húnavatnssýslu. Það er 0,45 km², fremur grunnt og í 1-2 m hæð yfir sjó. Sjávarmegin þess er malarkambur, sem vatnið síast í gegnum, því að þar er enginn ós.
Þjóðvegurinn er í næsta nágrenni og þaðan liggur vegur að vatninu og bænum Ásbúðum. Mikið var af af bleikju í vatninu. Nú er talið að vatnið sé fisklaust.
Vegalengdin frá Reykjavík er um 305 km og 40 frá Skagaströnd.