Árneskirkja er í Árnesprestakalli í Húnavatnsprófastsdæmi.
Árnes er bær, kirkjustaður og fyrrum prestssetur í Trékyllisvík. Séra Ljótur Refsson er fyrsti presturinn, sem getið er þar, 1237 (Flóabardagi 1244).
Sóknin er ein hin víðlendasta á landinu en orðin mjög fámenn og hefur löngum verið þjónað frá Hólmavík.
Gamla kirkjan, sem enn stendur uppgerð 1990-92, var vígð 1850. Hún er elzta húsið á Ströndum. Altaristaflan er eftir Carl Fries (1859). Ljóshjálmur og skírnarskál eru forn og kaleikurinn frá 1786.
Hin nýja var vígð í september 1991. Hún stendur hinum megin við þjóðveginn. Guðlaugur Gauti Jónsson, arkitekt, teiknaði hana. Útlit hennar er sótt í Reykjaneshyrnu. Blágrýtisstuðlarnir, sem standa undir altarinu, voru teknir úr fjörunni í sveitinni.
Fyrrum var líklega verið kirkja að Bæ. Þar mótar fyrir kirkjugarði. Þjóðsagan segir, að hún hafi verið flutt að Árnesi vegna þess að þar sást loga ljós á kvöldin og var staðurinn því talinn helgari.