Íslenski ferðavefurinn

  • endursetja

Álftartungukirkja

Álftartungukirkja er í Borgarprestakalli í Borgarfjarðarprófastsdæmi. Fyrstu heimildir um kirkju í  eru frá því um 1200. Hún var afhelguð 1970 vegna þess, hve hún var orðin hrörleg. Hún var byggð úr viðum Reykjavíkurkirkju 1795 og hluti þeirra er í núverandi kirkju. Hún var endurbyggð 1873 og járnklædd um aldamótin 1900. Smiður var Guðni Jónsson, bóndi á Valshamri. Viðgerð fór fram á árunum 1984-88 og hún endurvígð. Engu var breytt frá upphaflegri gerð hennar fyrr en 1905 eða 1906, þegar hún var klædd bárujárni.

Katólskar kirkjur á staðnum voru helgaðar Maríu guðsmóður. Álftártungukirkja var fyrrum útkirkja frá Staðarhrauni en árið 1880 var sóknin lögð til Borgar, þar til helgihaldi var hætt. Meðal merkra gripa kirkjunnar eru kaleikur og patina, kirkjuklukka frá 1722 með nafni Jóns Halldórssonar og aðra eldri. Ásgeir Bjarnþórsson málaði altaristöfluna 1943. Hún sýnir Jesú blessa börnin. Árið 1906 var sænskt harmoníumorgel keypt í kirkjuna og það er notað enn þá.

Myndasafn

Í grennd

Kirkjur á Íslandi
Það er erfitt að draga skörp landfræðileg skil milli kirkna, kirkjustaða og sögu kristninnar á milli. Á þessum vef fer skiptingin ekki eftir prófastsd…

Allar ábendingar eru velkomnar. Reynum að hafa staðreyndir eins réttar og mögulegt er.

Veldu landshluta

nat.is er upplýsinga- og ferðavefur um Ísland sem var stofnaður 1998.  Íslenska útgáfan er is.nat.is.    ( nat@nat.is )