Íslenski ferðavefurinn

  • endursetja

Andakílsá

Andakílsá er vatnsmikil bergvatnsá, sem byrjar í Skorradalsvatni. Áin hefur verið virkjuð og er   laxveiðisvæðið frá virkjun og að brú. Veitt er á tvær stangir og er algeng sumarveiði 150 til 250 laxar auk nokkurs af sjóbleikju. Áin er hæg og róleg og þykir henta fluguveiðimönnum sérstaklega.

Gott veiðihús er miðsvæðis á laxveiðisvæðinu.

Silungsveiðisvæði árinnar er neðri hluti hennar, sem er 7 km langur, allt frá brúnni yfir þjóðveg nr. 53. Veiðin er aðallega urriði, bleikja og nokkrir laxar á ári.

Mesta umhverfisslys í laxveiðiá á síðari tímum varð þegar starfsmenn Orku náttúrunnar hleyptu átta til tíu þúsund tonnum af aur úr uppistöðulóni út í Andakílsá um miðjan maí 2017. Enn eru menn að súpa seyðið af þessum ósköpum. Í fimm ár hefur verið unnið hörðum höndum að uppbyggingu og rannsóknum.

Lífríki í og við Andakílsá hefur ekki náð sér eftir aurflóð fyrir fimm árum 2017. Það er þó að hjarna við. Mikið hefur verið lagt í úrbætur og Orka náttúrunnar hefur varið um 90 milljónum króna til þeirra.

Vegalengdin frá Reykjavík er um 75 km og um 15 km frá Borgarnesi.

Myndasafn

Í grennd

Borgarnes
Borgarnes Borgarnes og nokkur sveitarfélög í Mýrarsýslu sameinuðust fyrir nokkru undir nafninu Borgarbyggð. Borgarnes er í landi Borgar á Mýrum og hé…
Veiði Vesturland
Stangveiði á Vesturlandi. Hér er listi yfir flestar laxveiðiár og silungsár og -vötn. Laxveiði Vesturlandi …

Allar ábendingar eru velkomnar. Reynum að hafa staðreyndir eins réttar og mögulegt er.

Veldu landshluta

nat.is er upplýsinga- og ferðavefur um Ísland sem var stofnaður 1998.  Íslenska útgáfan er is.nat.is.    ( nat@nat.is )