Íslenski ferðavefurinn

  • endursetja

Þveit

Þveit Hornafirði

Þveitin er í Nesjahreppi í A.-Skaftafellssýslu, skammt norðan Hafnar í Hornafirði. Það er 0,91 km², mjög   grunnt og aðeins í 2 m hæð yfir sjó. Myllulækur og Skrápslækur renna til þess en Þveitarlækur úr því til Hornafjarðarfljóts. Hringvegurinn nr. 1 liggur á eystri vatnsbakkanum. Umhverfið er grösugt og margbreytilegt. Í og á vatninu er hægt að skoða skemmtilegt fuglalíf. Allmikið magn af smábleikju er í vatninu, eingöngu vatnableikja, þrátt fyrir að sjógenginn fiskur eigi greiða leið upp í það. Því miður er netaveiði ekki stunduð í vatninu.
Til eru sagnir um að nykur hafi sést við vatnið á myrkum haustkvöldum. Setuliðið á Stokknesi hafði vatnið árum saman á leigu.

Veiðikortið

Leyfilegt er að veiða til kl. 22.00.

Veiðitímabil stendur yfir frá 1.apríl til 30. september.
Allt löglegt agn: Fluga, maðkur og spónn.

Veiðivörður / umsjónarmaður á staðnum:

Sigurður Sigfinnsson á Stórulág hefur umsjón með vatninu. Stórulág er staðsett um 2 km. norður af vatninu. s: 478-1353.

Vegalengdin frá Reykjavík er u.þ.b. 440 km og frá Höfn 10 km.

Myndasafn

Í grennd

Höfn í Hornafirði
Höfn er eini bærinn á landinu, sem er í skipgengdum árósi. Þar byggist lífið á fiski, verzlun og ferðaþjónustu. Hornafjarðarbær er á nesi milli Horna…
Veiði Austurland
Stangveiði á Austurlandi. Hér er listi yfir flestar laxveiðiár og silungsár og -vötn. Laxveiði Austurlandi …
Veiði Suðurland
Stangveiði á Suðurlandi. Hér er listi yfir flestar laxveiðiár og silungsár og veiðivötn. Laxveiði Suðurlandi Brúará – Hagós Brúará – …
Veiðikortið
Kaupa Veiðikortið

Allar ábendingar eru velkomnar. Reynum að hafa staðreyndir eins réttar og mögulegt er.

Veldu landshluta

nat.is er upplýsinga- og ferðavefur um Ísland sem var stofnaður 1998.  Íslenska útgáfan er is.nat.is.    ( nat@nat.is )