Vatnamót er stórt vatnasvæði í Skaftárhreppi í Vestur-Skaftafellssýslu, þar sem margar ár og sprænur og flæmast um hraun og sanda. Nokkrar ánna, sem til Vatnamóta falla, eru Breiðbalakvísl, Fossálar og Skaftá.
Þetta er einstætt vatnasvæði er 8 km sunnan þjóðvegarins. Útsýni til fjalla og jökla frá þessu svæði er tignarlegt. Stundum veiðast stærstu sjóbirtingarnir í Vatnamótum. Það er ekki úr vegi að hafa það í huga, að landslagið á þessu svæði breyttist verulega við Skaftárelda árið 1783. Vatnamót eru veidd með fimm stöngum.
Vegalengdin frá Reykjavík er 290 km og 12 km frá Klaustri.