Sauðafell er bær í Miðdölum í Dalasýslu undir samnefndu felli.
Sturlunga segir meðal annars frá för Vatnsfirðinga þangað í janúar 1229 og illvirkja
þeirra á staðnum. Sturla Sighvatsson var ekki heima, þegar gerðist. Hann drap Vatnsfjarðarbræður í hefndarskyni þremur árum síðar, þegar þeir áttu leið fram hjá bænum. Síðar var Jón Arason, Hólabiskup, staddur á Sauðafelli með sonum sínum tveimur og öðru fylgdarliði, þegaf Daði Guðmundsson í Snóksdal kom með her manns og handtók þá. Síðan voru feðgarnir fluttir til Skálholts, þar sem þeir voru hálshöggnir 7. nóvember 1550.
Sauðafell var kirkjustaður til 1919, þegar kirkjan var flutt að Kvennabrekku. Á katólskum tímum var þar Ægidíuskirkja.
Er ekki bara best að ferðast og fræðast um Ísland sem er í boði nat.is !!!
Eins og sjá hér að neðan, tengdar færslur er nat.is að reyna að halda jafnframt um gamlar og nýjar heimildir.