Safnið Langabúð á Djúpavogi
Langabúð, sem reist er úr bjálkum, og er elzti hluti hússins frá 1790, og gamla skrifstofuhús Kaupfélags Berufjarðar en það var reist árið 1848. Langabúð hefur verið gerð upp og hýsir nú safn Ríkharðs Jónssonar myndhöggvara og Eysteins Jónssonar alþingismanns.
Árið 2015 hafði fornmunasali í Svíþjóð samband við nat.is (Birgir Sumarliðason) og segir íslenskan ask gerðan af Ríkharði Jónssyni vera til sölu hjá sér. Var erindinu vísað á Morgunblaðið og greindi það frá honum í grein 19.desember sama ár. Þar segir m.a.: „Á botn asksins var áletrun: „Íslenskur askur úr íslensku efni, íslensk vinna, íslenskur stíll. Ríkarður Jónsson 1927.“ “ Varð þetta til að ættmenni Ríkhars stuðluðu að því að gripurinn kom til Íslands og síðar á safnið.
Safnið er opið
júni – ágúst