Urriðafoss í Þjórsá
Þjórsá geymir einn stærsta villta laxastofn landsins og hefur laxveiði verið stunduð þar lengur en elstu menn muna. Laxveiði hefur að mestu verið stunduð með netum og stangveiði lítið sem ekkert stunduð þar til sumarið 2017. Sl tvö ár hafa verið ótrúleg og hefur Urriðafoss trjónað á toppnum yfir bestu laxveiðisvæði landsinns miðað við veiði per stöng frá því að stangveiði byrjaði á svæðinu !!!
Urriðafoss er ein af náttúruperlum íslands og menn eru skyldaðir til þess að ganga vel um svæðið og hirða allt rusl.
Sannir veiðimen skilja aðeins sporin sín eftir og taka aðeins minningarnar með sér heim!
Veiðin
Vatnið í Þjórsá er jökulvatn og er allflesta daga litað en mismunandi mikið litað. Svo maðkveiði eða veiðar með t.d. túbu og sökku hentar mjög vel. Þá daga sem vatnið er fallegt á litin er einnig hægt að nota venjulegar flugur og útbúnað sem hentar þannig veiðum.