Íslenski ferðavefurinn

  • endursetja

Núpskirkja

Núpskirkja er í Þingeyrarprestakalli í Ísafjarðarprófastsdæmi. Núpur er fornt höfuðból og nú skólasetur  kirkjustaður við norðanverðan Dýrafjörð. Hann tilheyrði Dýrafjarðarþingum, þar til Þingeyri tók við.

Katólskar kirkjur staðarins voru helgaðar Jóhannesi skírara. Kirkjan, sem nú stendur, var byggð úr steinsteypu á árunum 1938-1939 og vígð 17. September 1939. Embætti húsameistara ríkisins sá um teikningu hennar en allt innandyra var gert samkvæmt teikningum og fyrirsögn séra Sigtryggs Guðlaugssonar. Guðmundur Jónsson, myndskeri frá Mosdal, skar út tákn og letur á prédikunarstólinn, kirkjubekki, gráturnar, söngloftsbrún og hörpu á sönglofti. Gréta og Jón Björnsson máluðu og myndskreyttu kirkjuna.

Meðal merkra muna kirkjunnar er kaleikur og patina frá 1774, skírnarskál úr tini og skírnarsár, sem Ríkharður Jónsson skar út. Séra Sigtryggur Guðlaugsson stofnaði unglingaskóla að Núpi snemma á 20. öld og kom upp skrúðgarðinum Skrúði, þar sem stendur stytta af honum og Hjaltlínu Guðjónsdóttur, konu hans.

Myndasafn

Í grennd

Núpur
Núpur við norðanverðan Dýrafjörð er fornt höfðingjasetur um aldir og skólasetur í áratugi. Þar sat m.a.  Eggert Hannesson (1550-1583), hirðstjóri og …
Þingeyri
Þingeyri við Dýrafjörð er elzti verzlunarstaður í V.- Ísafjarðarsýslu. Þar er góð höfn og kauptúnið fór að myndast á síðari hluta 18. aldar. Þar er ei…

Allar ábendingar eru velkomnar. Reynum að hafa staðreyndir eins réttar og mögulegt er.

Veldu landshluta

nat.is er upplýsinga- og ferðavefur um Ísland sem var stofnaður 1998.  Íslenska útgáfan er is.nat.is.    ( nat@nat.is )