Íslenski ferðavefurinn

  • endursetja

Vopnafjarðarkirkja

Vopnafjarðarkirkja er í Hofsprestakalli í Múlaprófastsdæmi. Hún var byggð á árunum 1901-1903. Hún er   vegleg timburbygging, sem tekur 250 manns í sæti. Þar er altaristafla eftir Jóhannes Kjarval, Frelsarinn talar til fólksins. Kirkjunni er þjónað frá Hofi.

Einhver fegursti og bezt varðveitti torfbær landsins er að Bustarfelli í Vopnafirði. Elztu hlutar hans munu vera frá 1770, þótt hann hafi breytzt mikið síðan. Fremri stofan er frá 1851-52, miðbaðstofan og piltastofan eru frá 1877. Það var búið í honum til 1966

Árið 1943 seldi Methúsalem Methúsalemsson ríkinu gömlu bæjarhúsin með því skilyrði, að þeim yrði haldið við. Hann varðveitti og safnaði ýmsum nytjamunum í eigu fjölskyldunnar til safnins með mikilli fyrirhöfn. Suma þeirra keypti hann á uppboðum og aðra fékk hann gefins. Safnið var opnað opinberlega 1982 en hafði verið einkasafn fram að því. Þjóðminjasafn Íslands hefur umsjá með því.

Myndasafn

Í grennd

Allar ábendingar eru velkomnar. Reynum að hafa staðreyndir eins réttar og mögulegt er.

Veldu landshluta

nat.is er upplýsinga- og ferðavefur um Ísland sem var stofnaður 1998.  Íslenska útgáfan er is.nat.is.    ( nat@nat.is )