Íslenski ferðavefurinn

  • endursetja

Villingaholtsvatn

villingaholtvatn

Villingaholtsvatn er í Villingaholtshreppi í Árnessýslu. Það er 0,8 km², dýpst 2 m og í 36 m hæð yfir sjó.  Suður úr vatninu er lítil rás til Flóaáveitunnar. Vegasamband er gott. Vegur nr. 305 liggur með vatninu norðanverðu. Talsvert er af fiski í vatninu, bæði urriði og bleikja, 1-2 pund.

Netaveiði hefur verið stunduð í vatninu og jafnvægi nokkuð gott. Sagt er að uppgönguauga hafi verið í vatninu, þar sem silungur kom um. Það er nú horfið. Veiði minnkaði við framgröft Flóaáveitunnar. Vegalengdin frá Reykjavík er um 80 km.

 

Myndasafn

Í grennd

Veiði Suðurland
Stangveiði á Suðurlandi. Hér er listi yfir flestar laxveiðiár og silungsár og veiðivötn. Laxveiði Suðurlandi Brúará – Hagós Brúará – …

Allar ábendingar eru velkomnar. Reynum að hafa staðreyndir eins réttar og mögulegt er.

Veldu landshluta

nat.is er upplýsinga- og ferðavefur um Ísland sem var stofnaður 1998.  Íslenska útgáfan er is.nat.is.    ( nat@nat.is )