Vallaneskirkja er í Vallanesprestakalli í Múlaprófastsdæmi. Hún var byggð árið 1930 og vígð árið eftir. tekur 100 manns í sæti. Anker Lund málaði altaristöfluna, sem sýnir Jesú með lærisveinunum á Genesaretvatni. Framan við og til hliðar við kórinn er altarið úr fyrri kirkju í Vallanesi. Ljósahjálmurinn er ævagamall og silfurkaleikurinn frá 1836. Skírnarsárinn, skreyttur rókókóflúri með skírknarskál úr silfri, er frá 18. öld. Vallanes var prestssetur til 1975.