Þau eru í Jökuldalshreppi í N.-Múlasýslu. Vötnin, sem hér verður getið, eru þrjú og svo lík, að þeim þverður að mestu lýst í sameiningu. Stórhólmavatn er syðst, 0,93 km² og í 522 m hæð yfir sjó. Langhólmavatn er 0,84 km² og í 492 m hæð yfir sjó. Geldingavatn er 1,03 km² og í 494 m hæð yfir sjó. Þau eru svo grunn, að þau gruggast í hvassviðri.
Stórhólma- og Langhólmavötn hafa afrennsli um Sauðá til Hofsár í Vopnafirði, en Geldingavatn um Geldingalæk til Tunguár. Akstursleið til vatnanna er léleg, en þó má skrönglast þangað á jeppa. Í Stórhólma- og Geldingavatni er helst bleikja, en ekki er vel kunnugt um fiskibúskap Langhólmavatns. Fjöldi stanga er ekki takmarkaður.
Vegalengdin frá Reykjavík um Norðurland er um 590 km og 70-75 km frá Egilsstöðum.