Tunguá og Dalsá eru báðar í Fáskrúsfjarðarhreppi í Suður-Múlasýslu. Tunguá á upptök sín í Tungudal, og er umhverfið að mestu gróið land.
Veiðin er sjógengin bleikja, yfirleitt fremur smá. Dalsá er í sama hreppi og upptök hennar eru í Daladal. Umhverfið er innsveit Fáskrúðsfjarðar. Sjógengin bleikja er í ánni og veiðin er mest smábleikja en stærri fiskar innanum. Besti veiðitíminn er seinni part sumars eða þegar bleikjan fer að ganga í árnar.
Vegalengdin frá Reykjavík er u.þ.b. 690 km og 80 km frá Egilsstöðum.