Þingskálar eru forn þingstaður á Rangárvöllum, austan Ytri-Rangár. Þar sjást enn þá gamlar búðatóttir, s.s. Njálsbúð, Gunnarsbúð og Marðarbúð. Alls eru þær taldar vera u.þ.b. 37 og friðlýstar.
Austan Þingskálabæjar er Þinghóll og á hlaðinu er stór steinn, sem er talinn hafa verið notaður við aftökur misindismanna. Hann er ýmist kallaður Blótsteinn eða Höggsteinn. Í jarðskjálftunum miklu 1896 hrundi bærinn og sex manns grófust undir rústunum. Bóndinn komst einn út úr þeim og hljóp berfættur til næsta bæjar til að sækja hjálp. Allir komust lífs af. Jarðskjálftarnir skildu eftir miklar sprungur í landi Þingskála.