Íslenski ferðavefurinn

  • endursetja

Teigstungur

Teigstungur eru uppi við jökul í Krossárdalnum milli Krossár að norðan og Gungnakvíslar að sunnan. Að   þeim liggja líka Krossárjökull og Tungnakvíslarjökull, sem hafa hopað verulega á 20. öldinni. Talsvert fjölbreyttur gróður eltir hopandi jöklana. Upptakakvíslar Krossár koma undan þeim báðum. Hin syðri er verulega vatnsmeiri, stundum illvæð og var því brúuð fyrir göngufólk. Framarlega í Teigtungurananum er strýtumynduð gnípa, sem kallast Göltur og fremst í rananum er geysistór steinbogi. Ryðrautt stuðlabergslag báðum megin Krossárjökulsins sýnir stuðlana í ýmsum stellingum, þannig að þeir líta út eins og risavaxið, nýútsprungið steinblóm. Sunnan syðri kvíslar Krossár er brattur og tindóttur hryggur, sem heitir Eggjar.

Guðrúnartungur eru syðsti fjallsraninn í Teigstungum. Norðurhlið þeirra er græn og gróin upp á efstu brúnir. Litfari og Moldi eru stórir höfðar ofarlega í Guðrúnartungum. Hinn fyrrnefndi er óvenjufagur með þvernhíptan hamar prýddan ýmsum litum eftir birtuskilyrðum.

Teigstungur eru nefndar eftir Teigi í Fljótshlíð, sem átti þar afrétt og útigöngu fyrir allt að 20 fjár á veturna. Eitt sinn fóru vinnumenn með fráfærulömb inn eftir og tóku með sér 12 ára, munaðarlausa stelpu, sem villtist frá þeim og kom ekki fram fyrr en í göngum um haustið. Hún hafði lifað á grasi og berjum um sumarið og eftir henni eru Guðrúnartungurnar nefndar.

Myndasafn

Í grennd

Hvolsvöllur
Hvolsvöllur á Suðurlandi Hvolsvöllur er kauptún í austanverðri Rangárvallasýslu, sem fór að byggjast á fjórða áratugi 20. aldar, þegar brýr voru komn…
Sögustaðir Suðurland
Ýmsir staðir tengdir sögu landshlutans Álfaskeið Álftaver Almenningar Alviðra Arnarbæli Áshildarmýri Ásólf…
Þórsmörk
Þórsmörk er ein af fegurstu náttúruperlum landsins, umlukin fögrum fjöllum, jöklum og jökulám. Hér með sanni segja að sjón sé sögu ríkari, því til að …

Allar ábendingar eru velkomnar. Reynum að hafa staðreyndir eins réttar og mögulegt er.

Veldu landshluta

nat.is er upplýsinga- og ferðavefur um Ísland sem var stofnaður 1998.  Íslenska útgáfan er is.nat.is.    ( nat@nat.is )