Löng og stórfalleg bergvatnsá. Af mörgum talin sú fallegasta í landinu. Í ánni hefur verið veitt með tíu stöngum og hleypur sumarveiðin á bilinu 200 til 450 laxar. Stöku sumur gefur enn betur.
Áin er þekkt fyrir miklar aflahrotur í upphafi veiðitímans og við lok hans. Áin er líka með þekktari stórlaxaám landsins. Síðustu sumur hefur veiðin þó verið jafnari. Áin er seld í þrennu lagi og eru jafnmörg vel búin veiðihús, eitt fyrir hvert svæði.
Laxveiðin i Stóru Laxá hefur verið frá 400-700 laxar á svæðum 1-2, 3 og 4 samtals 10 stangir á dag!!!