Stóra-Árskógskirkja er í Hríseyjarprestakalli í Eyjafjarðarprófastsdæmi. Stóri-Árskógur er bær og kirkjustaður á Árskógsströnd við vestanverðan Eyjafjörð. Þar var Jónskirkja í katólskum sið og prestssetur til 1884, þegar sóknin var sameinuð Völlum.
Stór og vegleg timburkirkja var vígð 1898, en hún skemmdist í fárviðri og skekktist á grunninum tveimur árum síðar. Ný 150 sæta, steinsteypt kirkja með turni, forkirkju og kór var byggð á árunum 1926-1927 og vígslan fór fram 6. júní.
Guðjón Samúelsson, húsameistari ríkisins og Halldór Halldórsson, arkitekt frá Garðsvík, teiknuðu kirkjuna. Vigfús Kristjánsson í Stóra-Árskógi var yfirsmiður. Altaristaflan er tákn upprisunnar eftir Arngrím Gíslason, málara. Guðmundur Guðmundsson, bíldhöggvari, skar fagran umbúnað hennar.
Kirkjan á tvo skírnarsái, annan skáru Hannes og Kristján Vigfússynir í Stóra-Árskógi en hinn gerði Guðmundur Frímann skáldi og í honum er forn skírnarskál. Á turni kirkjunnar er ljóskross.