Stokksnes skammt frá Höfn í Hornafirði
Margir leggja leið sína niður á Stokksnes til að njóta náttúrunnar og skoða seli á skerjunum fyrir utan ströndina.
Stokksnes er sunnan Vestra-Horns og þar er sandleira, sem er stundum hulin vatni. Vegur liggur frá vestan ganganna undir Almannaskarð niður á Stokksnes. Þar voru mikil radarmannvirki, s.s. stórir skermar úr steinsteypu, sem voru jafnaðir við jörðu í kringum aldamótin 2000.
Margir leggja leið sína niður á Stokksnes til að njóta náttúrunnar og skoða seli á skerjunum fyrir utan ströndina.
Stokksnes er nes skammt frá Höfn í Hornafirði. Þar er ratsjárstöð sem reist var af NATO en hún er nú rekin af Landhelgisgæslunni. Á árum kalda stríðsins rak bandaríski herinn stóra ratsjárstöð á Stokksnesi og voru þar þá að jafnaði á annað hundrað hermenn. Stöðin hóf starfsemi árið 1955 og þar voru allmikil mannvirki sem nú hafa flest verið rifin.
Mynd: Eyðibýlið Horn