Stíflisdalsvatn er í Þingvallahreppi í Árnessýslu. Það er 1,65 km², dýpst 30 m og í 178 m hæð yfir sjó. og Mjóavatnslækur renna til þess auk nokkurra annarra lækjarsytra, en Laxá í Kjós rennur úr því. Skammt er að vatninu frá Þingvallavegi, nr. 36. Í vatninu er smár urriði, meðalþungi 300 gr., í miklu magni. Aðallega var veitt í net. Vegalengdin frá Reykjavík er u.þ.b. 35 km.