Íslenski ferðavefurinn

  • endursetja

Staðarvatn

urridi

Staðarvatn er í Skeggjastaðahreppi í N.-Múlasýslu. Það er 0,24 km², nokkuð djúpt á parti og í 264 m   hæð yfir sjó. Lítið rennur til þess á yfirborði en Dalhúsaá, sem úr því fellur, er allvatnsmikil.

Það hljóta því að vera uppsprettur í vatninu sjálfu. Dalhúsaá sameinast Gæsagilsá og þær hverfa í Bakkafjörð. Það er ekki akfært að vatninu en komast má akandi í 6 km fjarlægð. Í vatninu er sæmilegasta bleikja.

Vegalengdin frá Reykjavík er u.þ.b. 653 km og 25 km frá Vopnafirði og 53 km frá Þórshöfn.

 

Myndasafn

Í grennd

Veiði Austurland
Stangveiði á Austurlandi. Hér er listi yfir flestar laxveiðiár og silungsár og -vötn. Laxveiði Austurlandi …

Allar ábendingar eru velkomnar. Reynum að hafa staðreyndir eins réttar og mögulegt er.

Veldu landshluta

nat.is er upplýsinga- og ferðavefur um Ísland sem var stofnaður 1998.  Íslenska útgáfan er is.nat.is.    ( nat@nat.is )