Íslenski ferðavefurinn

  • endursetja

Staðarkirkja

Staðarkirkja er lítið breytt frá upphaflegri gerð, með turni yfir vesturstafni. Dyraumbúnaður kirkjunnar  staðarkirkja reykjanesier skrautlegur, beggja vegna dyra eru hálfsúlur með súlnahöfðum í einfölduðum samsettum stíl. Þetta er ein af fyrstu timburkirkjunum sem upphaflega var máluð, en ekki tjörguð, en tilheyrir þó eldri gerð kirkna með þakturni.

Illa var komið fyrir kirkjunni þegar ákveðið var að taka hana á fornleifaskrá árið 1964, hundrað árum eftir að hún var reist. Yfirbyggingin var fúin og skæld, en steinhlaðin undirstaðan úr lagi gengin. Þjóðminjasafnið fékk Bjarna Ólafsson smið til viðgerða skömmu síðar og var kirkjunni þá lyft af grunni, undirstöðurnar hennar voru styrktar og henni komið fyrir á nýjun undirstöðum. Veggirnir eru klæddir listasúð að utanverðu og á þaki er rennisúð. Gert var við kirkjuna á ný á árunum 1992-97. Fyrir dyrum stendur að mála hana að utanverðu og blettamála að innanverðu, en slíkt krefst mikillar fagmennsku.

Myndasafn

Í grennd

Kirkjur á Reykjanesi
Listi yfir flestar kirkjur landshlutans Grindavíkurkirkja Hvalsneskirkja Kálfatjarnarkirkja Kálfatjörn Keflavíkurkirkja …
Kirkjur á Suðvesturlandi
Það er erfitt að draga skörp landfræðileg skil milli kirkna, kirkjustaða og sögu kristninnar á milli landshluta. Á þessum vef fer skiptingin ekki efti…

Allar ábendingar eru velkomnar. Reynum að hafa staðreyndir eins réttar og mögulegt er.

Veldu landshluta

nat.is er upplýsinga- og ferðavefur um Ísland sem var stofnaður 1998.  Íslenska útgáfan er is.nat.is.    ( nat@nat.is )