Íslenski ferðavefurinn

  • endursetja

Staðarfell

Staðarfell er kirkjustaður í Fellsstrandarhreppi á Meðalfellsströnd. Bærinn stendur undir snarbröttum klettahlíðum samnefnds fjalls. Yztafellsmúli er einhver bezti útsýnisstaður héraðsins. Sunnan hans er samnefndur skógur, sem er í umsjá Skógrætar ríkisins.

Magnús Friðriksson (1862-1947) og kona hans, Soffía, gáfu jörðina í minningu einkasonar þeirra, Gests, og fóstursonar, Magnúsar, til stofnunar húsmæðraskóla. Bræðurnir drukknuðu úti fyrir Staðarfelli 2. október 1920. Í húsnæði skólans var rekin endurhæfingarstöð á vegum SÁÁ.

Símstöð og bréfhirðing var á Staðarfelli um áratugi fram yfir 1980. Halldór E. Sigurðsson bjó að Staðarfelli 1937-55. Hann varð síðar fjármála- og landbúnaðarráðherra Framsóknarflokksins. Staðarfell er hlunnindajörð með miklu og góðu landi, skógi, selveiði, æðarvarpi, fugla- og eggjatöku.

Á 11. og 12. öld bjó þar Þórður Gilsson, faðir Hvamms-Sturlu, ættföður Sturlunga. Bærinn brann árið 1808. Í brunanum glataðist stórt bókasafn og miklar matarbirgðir.

Staðarfellskirkja er í Hvammsprestakalli í Snæfellsnes- og Dalaprófastsdæmi. Katólskar kirkjur á staðnum voru helgaðar Pétri postula. Staðarfellskirkja lá lengi undir Skarðsþing á Skarðsströnd og varð síðar útkirkja frá Hvammi í Hvammssveit. Á árunum 1880-1890 voru Staðarfells-, og Dagverðarneskirkjur sérstakt prestakall, Staðarfellsþing, en það var aldrei staðfest með lögum. Kirkjan, sem nú stendur, er úr timbri og var vígð 1891.

Myndasafn

Í grennd

Staðarfellskirkja
Staðarfellskirkja er í Hvammsprestakalli í Snæfellsnes- og Dalaprófastsdæmi. Katólskar kirkjur á  voru helgaðar Pétri postula. Staðarfellskirkja lá le…

Allar ábendingar eru velkomnar. Reynum að hafa staðreyndir eins réttar og mögulegt er.

Veldu landshluta

nat.is er upplýsinga- og ferðavefur um Ísland sem var stofnaður 1998.  Íslenska útgáfan er is.nat.is.    ( nat@nat.is )