Snartarstaðakirkja er í Skinnastaðaprestakalli í Þingeyjarprófastsdæmi. Snartarstaðir eru bær og skammt frá Kópaskeri í Presthólahreppi. Kirkjan á Presthólum var lögð niður 1928 og ný 80-90 sæta sóknarkirkja, steinsteypt með turni, byggð á Snartarstöðum og vígð 5. marz 1929. Ingvar Jónasson var yfirsmiður. Ljóskross var settur á hana á 50 ára vígsluafmælinu.
Henni fylgdu ekki margir gripir úr Presthólakirkju en einn þeirra er sérkennilegur koparstjaki með ártalinu 1655 og silfurkaleikur og patina frá 18. öld. Sveinungi Sveinungason í Lóni málaði aflagða altaristöflu, sem er í kirkjunni.
Nokkrir munir skemmdust í jarðskjálftanum 13. janúar 1976 en kirkjuhúsið sjálft slapp. Öll Núpasveit á kirkjusókn til Snartarstaða auk Melrakkasléttu, allt að Blikalóni, en þar tekur Raufarhafnarsókn við.